|
Ágæti þátttakandi.
Ég er nemandi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og vinn nú að lokaverkefni til meistaragráðu. Verkefnið felst í að kanna þekkingu og viðhorf leikskólakennara á bernskulæsi og eflingu þess innan leikskólanna.
Bernskulæsi (e. emergent literacy, stundum nefnt byrjendalæsi, leikskólalæsi eða þróun læsis) vísar til þróunar á mikilvægum undirstöðuþáttum lestrarfærni áður en formleg lestarkennsla hefst. Þá er m.a. átt við hljóðkerfisvitund, bókstafi og hljóð þeirra, málskilning og þekkingu barna á algengum hugtökum sem tengjast ritmáli. Málskilningur, hlustun, tjáning og tilfinning fyrir hljóðum og uppbyggingu tungumálsins þróast mjög hratt árin sem börnin stunda nám í leikskóla. Þar er því lagður mikilvægur grunnur að þroska barna sem undirbýr þau fyrir ýmis flókin viðfangsefni síðar á ævinni, ekki síst lestarnámið.
Ég yrði afar þakklát ef þú sæir þér fært að svara meðfylgjandi spurningum. Það tekur u. þ. b. 10-15 mínútur að svara könnuninni og þér er að sjálfsögðu frjálst að hætta þátttöku hvenær sem er eða sleppa því að svara einstaka spurningum. Farið verður með öll gögn sem trúnaðarmál og ekki er hægt að rekja svör til þátttakenda.
Ef þú vilt ekki svara einstökum spurningum velur þú hnappinn ,,vil ekki svara”. Þess er ekki krafist að póstnúmer sé gefið upp í könnuninni þó spurt sé um það og er það hverjum og einum í sjálfsvald sett hvort hann fyllir þann reit út eða ekki.
Til að fara á milli síðna smellir þú á ,,Áfram“ hnappinn sem er fyrir neðan hverja síðu.
Með fyrirfram þökk fyrir þátttökuna, Helga Sigurðardóttir, leikskólakennari
Vinsamlegast veldu ,,Áfram” hnappinn til að byrja á könnuninni.
|
| |
|
|
|
1. Hefur þú mikinn eða lítinn áhuga á bernskulæsi í leikskólum: |
| |
|
|
|
|
2. Hversu mikla eða litla fræðslu fékkst þú um bernskulæsi í leikskólakennaranámi þínu: |
| |
|
|
|
|
3. Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með þá fræðslu sem þú fékkst um bernskulæsi í leikskólakennaranámi þínu: |
| |
|
|
|
|
4. Hversu mikla eða litla fræðslu fékkst þú um dæmigerðan málþroska barna í leikskólakennaranámi þínu: |
| |
|
|
|
|
5. Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með þá fræðslu sem þú fékkst um dæmigerðan málþroska barna í leikskólakennaranámi þínu: |
| |
|
|
|
|
6. Hversu mikla eða litla fræðslu fékkst þú um tal- og málþroskafrávik barna í leikskólakennaranámi þínu: |
| |
|
|
|
|
7. Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með þá fræðslu sem þú fékkst um tal- og málþroskafrávik barna í leikskólakennaranámi þínu: |
| |
|
|
|
|
8. Vinsamlegast merktu við hvaða málþroskaskimanir/skráningar eru notaðar í leikskólanum sem þú starfar á: |
| |
|
|
|
|
9. Vinsamlegast merktu við hversu sammála eða ósammála þú ert eftirfarandi fullyrðingum um viðbrögð leikskólans sem þú starfar á, við málþroskafrávikum barna:
|
|
|
|
|
|
10. Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með þá íhlutun sem beitt er í leikskólanum sem þú starfar á: |
| |
|
|
|
11. Vinsamlegast merktu við hversu sammála eða ósammála þú ert eftirfarandi fullyrðingum um leikskólakennaranám þitt:
|
|
|
|
|
12. Vinsamlegast merktu við hversu sammála eða ósammála þú ert eftirfarandi fullyrðingum sem snúa að því hvernig þér finnst að eigi að vinna með bernskulæsi:
|
|
|
|
|
13. Vinsamlegast merktu við hversu sammála eða ósammála þú ert eftirfarandi fullyrðingum um hvernig þú vinnur með bernskulæsi:
|
|
|
|
|
14. Vinsamlegast merktu við hversu sammála eða ósammála þú ert eftirfarandi fullyrðingum:
|
|
|
|
|
15. Vinsamlegast merktu við hversu mikið eða lítið þú vinnur með eftirtalda undirþætti hljóðkerfisvitundar til eflingar bernskulæsis:
|
|
|
|
|
16. Vinsamlegast merktu við hversu mikið eða lítið þú vinnur með eftirtalda undirþætti málþroska, þ.e. málskilnings og máltjáningar til eflingar bernskulæsis:
|
|
|
|
|
|
17. Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með það hvernig unnið er með bernskulæsi í leikskólanum: |
| |
|
|
|
|
18. Hversu sammála eða ósammála ert þú því að vinna eigi á markvissari hátt með bernskulæsi í leikskólum almennt: |
| |
|
|
|
|
19. Telur þú að leikskólakennarar hafa almennt góðan eða slæman aðgang að námsefni og aðferðum til eflingar hljóðkerfisvitundar í leikskólum: |
| |
|
|
|
|
20. Telur þú að leikskólakennarar hafa almennt góðan eða slæman aðgang að námsefni og aðferðum til eflingar málfærni, þ.e. málskilnings, máltjáningar og orðaforða í leikskólum: |
| |
|
|
|
|
21. Hversu opið (óformlegt) eða skipulagt (formlegt) ætti námsefni til eflingar bernskulæsis að vera að þínu mati: |
| |
|
|
|
|
22. Hversu mikla eða litla áherslu ætti að leggja á notkun raunprófaðar aðferða (þ.e. aðferðir sem er búið að staðfesta með rannsóknum að virki betur en aðrar) til eflingar bernskulæsis að þínu mati: |
| |
|
|
|
23. Vinsamlegast merktu við hversu líklegt eða ólíklegt er að þú munir notfæra þér eftirfarandi vettvang til að mynda fagleg tengsl við aðra leikskólakennara til að efla bernskulæsi í leikskólum:
|
|
|
|
|
|
| 24. Hver er starfsaldur þinn sem leikskólakennari (í árum): | | |
|
|
|
|
| 25. Hver er aldur þinn (í árum): | | |
|
|
|
|
26. Hvort ert þú kona eða karl: |
| |
|
|
|
|
| 27. Í hvaða póstnúmeri er leikskólinn sem þú starfar á: | | |
|
|
|
|
| 28. Er eitthvað annað sem þú vilt koma á framfæri? | | |
|
|
|